Þarf að endurhanna/bæta við bílastæðum við Lindaskóla og Núp, stæðin sem tilheyra Lindaskóla eru Galtarlindarmegin og oft tóm, á meðan stæðin við Núpalind eru alltaf troðfull strax kl 8 á morgnanna og við allar uppákomur, bílastæði við fjölbýlishús við Núpalind eru ansi oft nýtt af gestum Lindaskóla og Núps.
Löngu komin tími á breytingar á stæðunum við Núp og Lindaskóla, Núpalindar megin.
Íbúar við Núpalind orðnir langþreyttir á að komast ekki heim og þurfa að leggja bílum sínum við Elko ef það eru einhverjar uppákomur í skólunum. Auk þess sem lagt er á grænu svæðin í kring.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation