Setja hljóðeinangrandi vinnugirðingu eða hengja hljóðeinangrandi mottur á núverandi girðingu til að lágmarka hávaða frá framkvæmdasvæði.
Styð það heilshugar. Nánast ómögulegt að þola hávaðan hvað þá vinna heima vegna C-19 af hávaða.
Kársnesskóli eða Kópavogsskóli?
Kársnesskóli eða Kópavogsskóli?
Þetta er galin hugmynd. Verktakinn á að sjá um þetta sjálfur. Notum peningin frekar til að gera eitthvað sniðugt fyrir börnin í hverfinu
Þar sem framkvæmdin mun vara í langan tíma er vert að lágmarka ónæði til nágranna og vegfarenda á framkvæmdatíma.
Þetta er góð hugmynd sem ég styð. Mætti jafnvel setja reglur hjá Kópavogsbæ að nota skuli hljóðeinangrandi vinnugriðingar við allar nýbyggingar. Hefur verið mikið um hávaða vestast á Kársnesinu við nýbyggingar og nú er að hefjast vinna við byggingar á 3-4 lóðum við Hafnarbraut og Bakkabraut.
Klárlega góð hugmynd sem sýnir hvernig bærinn er tilbúinn til að taka tillit til þeirra óþæginda sem fylgja byggingaframkvæmdum. Byggingatíminn er líka í árum talinn þannig að já segi ég
Sammála Björgvini. Að sjálfsögðu er það eðlileg krafa að verktakar verði látnir setja upp hljóðeinangrun á svæðið. Ég geri ráð fyrr að þess hafi verið getið í útboðsgögnum, eða hvað?
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation