Gatnamót Ásbúð /Hnoðraholtsbraut

Gatnamót Ásbúð /Hnoðraholtsbraut

Gangbraut við gatnamót Ásbúðar - Hnoðraholtsbraut þar sem stígurinn endar. Nú er gangstétt í átt að miðgarði sem endar og engin gangbraut sem leiðir þig yfir götuna á stíginn sem þú þarft að nota til að komast alla leið. Börn eru í flestum tilvikum að nýta þessa leið og þetta eru hættuleg gatnamót. Vegfarendur úr Ásbúð þurfa mjög langa leið til þess að komast yfir Hnoðraholtsbraut á gangbraut.

Points

Það vantar alveg tengingu á milli Ásbúðar yfir hnoðraholtsbraut í nærliggjandi hverfi. Það er ekki göngustígur að hnoðraholtsbraut eða gangbraut yfir hnoðraholtsbraut út úr Ásbúðinni. Því eru gangandi/hjólandi vegfarendur í mörgum tilfellum börn að þvera hnoðraholtsbraut af grasbalanum Ásbúðarmegin þar sem er ekki göngustígur til þess að komast yfir á gangstíg hinu megin sem liggur að Miðgarði.

Sammála, þessi gatnamót Ásbúð Hnoðraholtbraut eru mjög varasöm fyrir gangandi og hjólandi. Þarna vantar nauðsynlega gangbraut. Þarna eru börn að þvera hættulega götu á hverjum degi.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information