Þar sem ekki var bætt úr kjörum öryrkja og aldraðra fyrir samþykkt síðasta fjárlagafrumvarps, þá ber alþingi, a.m.k. þeim sem hafa sómatilfinningu, að ógilda síðustu ákvörðun kjararáðs með þeim ráðum sem siðuðum mönnum sæmir.
Berið saman línurit og aðrar opinberar upplýsingar um þróun launa frá 2008 til des.2016
Fyllilega sammála því að alþingi ógildi ákvörðun kjararáðs og sérstaklega þar sem aldraðir og öryrkjar hafa ekki notið kjarabóta á við aðra í þessu þjóðfélagi.
Ef þingmenn og ríkisstjórn hafa áhuga á að standa við kosninga loforð sín núna þá byrja þeir á að leiðrétta þetta hróplega misræmi í launum sínum og aldraðra.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation