Flestir íbúar norðan Austurvegar eiga erindi í Lyfju eða Nettó hinumegin. Um núverandi gangbraut kliggur leið yfir innkeysluna að Skalla og Lyfju þar sem búast má við umferð úr einum fimm áttum í einu. Ég legg til að þessi gangbraut verði flutt, eins og sjá má á meðfylgjandi skýringarmynd.
Ég horfi daglega upp á fólk, jafnvel með göngugrind, skjótast yfir götuna á móts við Lyfju, til að fara að ná í lyfin sín eða sækja sér nauðsynjar í Nettó. Þessi breytta staðsetning myndi koma öllum íbúum norðan Austurvegar til góða, að mínu mati.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation