Bæta ætti lýsingu norðan Suðurhóla milli Eyrarbakkavegar og Háheiðar fyrir notendur á stíg
Á nýju hringtorgi við Eyrarbakkaveg er góð lýsing og einnig er lýsing almennt góð á stíg meðfram Suðurhólum. Á kaflanum milli Eyrarbakkavegar og Háheiðar er aðeins lýsing sunnan Suðurhóla sem nær ekki yfir á stíg, og engin lýsing er norðan megin og ætti að bæta úr því. Leiðin er partur af vinsælli göngu-, skokk og hjólaleiðum bæjarbúa. Þegar myrkur er, er mikið myrkur og myndi þetta bæta öryggistilfinningu vegfarenda á stíg.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation